Hamingjan er ekki fólgin í því að gera það sem þú hefur ánægju af, heldur hafa ánægju af því sem þú gerir.
Klukkan
01.01.2010 13:51:08 / saedis

Gleðilegt nýtt ár

Já enn á ný er komið nýtt ár8| Það er með ólíkindum hvað tíminn líður hratt:$

Nú árið er liðið í aldanna rás og aldrei það kemur til baka......

Árið sem var að líða var okkur hér á Túngötu 3 virkilega gott:haha:

Ef ég stikla á stóru hvað gerðist á þessu ári þá þarf ég aðeins að fara yfir á árið 2008 þar sem ég gleymdi að gera annál fyrir það ár um síðustu áramót:$

2008:
Þá fermdist frumburðurinn hann Jóhannes
Ég fór til London um vorið með Sigrúnu og Helgu í ferð sem var ógleymanleg8)
Það reið yfir stór jarðskjálfti um vorið8|
Ég kynntist Gumma mínum um vorið:haha:
Ég fór í systraferð með börnin til Tenerife:haha:
Ég fór í haustferð til Spánar með Gumma:haha:

Margt annað gott og gagnlegt gerðist á þessu ári 2008.

2009:
Árið byrjaði ósköp venjulega, janúar kaldur að vanda.....

Ég fór að kenna aftur
Hörður fermdist
Margrét Unnur fermdist
Bryndís og Agnes urðu stúdent
Ég kláraði sérkennaranámið
Kallý útskrifaðist sem leikskólakennari
Við Gummi giftum okkur 6.júní:haha:
Gummi og félagari í GRAL voru tilnefndir til Grímunnar fyrir 21.manns saknað
við fengum skemmtilega ástralska gesti
krakkarnir fóru til Noregs til pabba síns og Brynhildar í nokkrar vikur
Við Gummi fórum í 2 vikur til Marmaris:haha::haha:
Við fjölskyldan fórum í útilegur nokkrar með tjaldvagninnn (ég enn ekki farin að ná að bakka með hann8|.... hefðu samt mátt vera fleiri útilegur...
Ég hélt áfram í námi, Mastersnámi við menntavísindasvið HÍ
Gummi vann íslensku barnabókaverðlaunin 2009 fyrir bók sína Þvílík vika:haha:
um haustið fórum við í heimsókn til vinafólks til London
Ég hætti sem formaður Vg Árborgar
Söng í kór og fór í söngtíma:haha:
keypti mér kort í líkamsræktarstöð sem var frekar lítið notað8|
þyngdist óþarflega mikið, en maður er bara svona vel giftur:haha:


Þetta og margt annað dreif á daga mína og okkar á þessu herrans ári.
Yndislegt ár sem sagt að baki með skemmtilegum samskiptum við frábært fólk, góða vini og ættingja. Góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar:haha:

Guð blessi ykkur og gefi ykkur heillaríkt ár 2010




» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2009 13:51:44 / saedis

Gleðileg jól kæru vinir:)

Já enn á ný eru blessuð jólin gengin í garð:haha:

Ætli það séu engin takmörk fyrir því hversu mikið konfekt maður getur látið í sig á þessum dögum8|
Annars er nú ekkert notalegra en að liggja upp í sófa með malt og appelsínblöndu, Nóakónfekt og góða bók í hönd, krakkarnir að leika sér, eða í tölvunni og bóndinn að strjúka á mér tásurnar:haha: hversu mikið meira getur kona óskað sér:haha::haha:

Annars erum við búin að eiga yndisleg jól, byrjuðum á að fá jólasveina í heimsókn á aðfangadag, reyndar er sú stutta aðeins farin að missa trúna á þessa sveina, kemur með yfirlýsingar um það reglulega að það sé mamman sem setur í skóinn og að gullið sem þar fer sé geymt inni í skáp 8| Eftir það var farið að dreifa jólakortum og farið kirkjugarða með kerti.  Síðan var haldið heim að sjóða hrygginn:haha:
Við skelltum okkur á samkomu kl.17 þar sem unga daman á heimilinu las jólaguðsspjallið.
Kl. 18 var síðan sest við matarborðið og matnum gerð góð skil, þar með var át jólanna hafið:$
Í gær var síðan jólaboð hjá mömmu og pabba:haha: alltaf ljúft að koma þangað í kökur, við vorum síðan aftur þar um kvöldið í hangikjeti:haha:
krakkarnir  fóru til pabba síns og Brynhildar um eftirmiðdaginn og var kvöldið tekið í að horfa á hinn eina sanna Hugh Grant og síðan lesið og etið meira konfekt:$:$

Í dag á að leggjast upp á vini og vandamenn í leit að meira góðgæti og í kvöld erum við svo að fara á frumsýningu á Ólíver í Þjóðleikhúsinu:haha:

Þannig að þetta eru bara dekurdagar í einu orði sagt, vigtinni var lagt yfir jólin :$en mun að öllum líkindum verða tekin fram á nýju ári með frumlegum áramótaheitum8|

knús og kærleikskveðja til ykkar að sinni
Sædís8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 22:38:40 / saedis

Tuppeware......

Ég brá undir mig betri fætium áðan og skellti mér á tuppeware kynningu8|
Eins lítið og ég nota þessar vörur sem hafa náð þvílíkum vinsældum hér á landi, hef ég alltaf jafn gaman að  því að fara á þessar kynningar8|
Mér finnst alltaf jafn stórbrotið að hlusta á þessar yndælu konur sem eru í  því að kynna þessar dollur, útskýra hvernig hægt sé að nýta þessa og hina afganga og frysta í umræddum dollum,  hvernig sé hægt að hagræða í ísskápnum með því að raða áleggi og öðru í ákveðin box og STAFLA upp:!: Vá ég er alltaf jafn agndofa.... hlusta á þær lýsa því þegar þær útbúa t.d pizzu og nota þá ákveðnar skálar sem eru sérhannaðar undir hnoðdeig:$ Eða hvernig þær pakka notalega og brosandi niður nesti fyrir eiginmann og börn í skóla og vinnu í snyrtileg, ferköntuð box....
Já mér verður alltaf hugsað til allra minna boxa, skála og fl. sem ég hef keypt í gegnum árin í þeirri von að ég gæti kannski orðið svona skipulögð húsmóðir:haha:

Húsmóðir sem hugsanlega gæti lært að láta  malakoffið í lítið sætt box í stað þess að henda því beint inn i ísskáp eða í nestispoka númer 3 og geyma það þannig.  Hugsa til allra skálanna og alls sem ég hef eytt slatta peningum í, sem eru núna úti í skúr undir nagla og skrúfur, eða í gömlum sandkössum síðan að krakkarnir voru litlir eða einhver staðar undir terpentínu inn í skúr eða málningu8|

Æ sem betur fer erum við ekki öll eins, ég er voða sátt með mína plastpoka (þegar ég man eftir þeim) undir mitt malakoff og oststykkin mín og líka voða sátt við að hræra mitt deig (þegar ég útbý það) í skálum keyptum í Hagkaup eða RL búðinni.
En ég er samt voða glöð að það skulu vera til svona skipulagðar manneskjur í eldhúsinu:haha:

Jæja best að fara að skipuleggja eitthvað annað en skápana mína:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 08:49:59 / saedis

spann...

tad er buid ad vera svo ljuft her a spnai,:haha:vorum i barselona i gaer og skodudum allt a milli himins og jardar tar.  Tvilikar byggingar va8|
annars er jafn mikid af indverjum her og a tenerife og teir reyna  hvad teir geta ad troda einhverju inn a mann:klikk:
annars eru mjog FLOTTIR skor her og kosta ekki mikid:haha::haha::haha:

annars bara allt rosa fint nema evran bara haekkar og haekkar:klikk: en ta er nu munur ad vera i faedi a hotelunu, lifa eins og greifar i hladbordi sem l0ngu buid er ad borga:haha:

knus a linuna og Gud blessi ykkur

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 14:41:43 / saedis

Hola amigos

jaeja ta erum vid maett i sol og blidu her a spani nanar sagt a Llore de Mar a nordur hluta spanar, nalaegt Barselona.
Eidur Smari vinur okkar tok a moto okkur med prompi og prakt a flugvellinum og lanadi okkur limmuna sina hingad a Lloret de mar.  vid munum sidan eiga stundir saman i barselona sidar i vikunni8):haha:

nei segi bara svona, en her er mjog fallegt og skemmtlegt ad vera, vid erum buin ad ganga okkur upp a kne og eg er svo heppin ad hann Gummi minn er jafn "ofvirkur" og eg tegar kemur ad tvi ad ferdast og vid erum a stodugri ferd .
Hotelid er nokkud gott bara, spa, sundlaug og alles:haha: stjanad vid okkur i bak og fyrir, vid erum med fullt faedi innifalid sem er galli ad einu leiti ad ta kemur alltaf islendingurinn upp i manni i tvi ad fa alltaf sem mest fyrir peninginn:$:haha: og ta bordar madur tar til eg veit ekki hvad8| en eg er nu ekki viss um ad madur endist i tvi lengi... 8)

Strondin her er frabaer og tessi stadrur er rosa vinalegur og fallegur.  vid aetlum til Barselina a tridjudaginn og kannski a morgun lika, tad er klukkutima akstur tangad.

annars er tetta nu mest bara dekur og dulleri hja okkur, reyndar reynt ad lesa smavegis i fotlunarfraedum a medan legid er i solinni.

knus a linunna
Gud blessi ykkur
kv. Saedis

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 10:29:59 / saedis

Vandræðagangur....

Þetta er nú meiri vandræðagangurinn8| Vigtin er búin að taka yfirhöndina enn á ný svo nú þar mín að taka til sinna ráða enn á ný:klikk: Þetta gerist svo laumulega alltaf, smátt og smátt læðist eitt og eitt aukakíló á mann til baka án þess að maður hafi nokkuð beðið um það:evil:
Kortið sem ég keypti í Toppsport hefur verið örlitið notað og ætla ég m.a að skella mér á eftir í tækjasalinn á meðn Agnes Halla skottast í ballett:d  En það er ekki nóg, mataræðið verður að komast i gott horf aftur, ég þarf að hætta þessu nammiáti.... en það er hægara sagt en gert8|

En að einhverju aðeins skemmtilegra:haha:  Gummi er að fara á  efir að taka við verðlaunum fyrir sögu sem hann skrifaði og er sú saga komin út í bók ásamt fullt af öðrum sögum sem voru líka í þessari keppni sjá www.myrin.is
Í gær fórum við í hóf sem var haldið fyrir þessa rithöfunda í húsi rithöfundasambandsins þ.e Gunnars hús, rosalega flott hús og væri ekki amalegt að búa í því 8)
Síðan eru bara 6 dagar í að maður skelli sér í sólina á Spáni:haha::haha: Við Gummi ætlum að slaka á í vikutíma í fallegum bæ nálægt Barcelona sem heitir Lloret de Mar.  Fínt að hvíla sig á skólabókum og verkefnum í nokkra daga.

Well best að fara að drífa sig á hlaupabrettið svo maður verði nú svolitið flottur  á spáni8)8)
síðan eru það víst 2 stórafmæli og barnabókahátíð í dag svo ekki er þetta besti dagurinn í að byrja nýjan lífsstíl8|:haha:

Farið vel með ykkur og Guð blessi ykkru8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 20:08:48 / saedis

Annir og appelsínur....

Það er ótrúlegt hvað tímanum líður... enn ein helgin tekin við og mér finnst sú síðasta varla vera liðin. kannski er það vegna þess að dagarnir eru allir svo skemmtilegir að þeir líða svona hratt, eða að ég hef svo mikið að gera að ég átta mig bara ekki á því:d

Ég ákvað að halda áfram í þessu námi mínu og er í 20 einingum núna.  Þannig að kvöldin fara núna í að sinna börnum og búi, lesa skólabækur, fara á hina ýmsu fundi svo ekki sé talað um að slaka á, hitta vini og vandamenn og  sv ég tali nú ekki um að knúsast8)

Annars sýnist mér sem svo að ég hafi gleymt mér aðeins í góðærinu því að hinn góði árangur sem ég hafði náð líkamlega er eitthvað farinn að dala þannig að það er spurning um að taka upp fyrri lífstíl á ný8|  að undanskildu ýmsu en en snúa mér að því að borða hollustu þ.e gulrætur og annað  kanínufóður og gerast svo kannski styrktaraðili að einhverri stöðinni.  Mikið svakalega er það svekkjandi hversu lítið maður má leyfa sér í mat og drykk...:klikk:  Kannski ég skelli mér bara með dúllunni minn í ballett:$ væri nú ekki slæm í því ;)

Annars ætla ég að byrja frekar á morgun í breyttum lífsstíl þar sem ég ætla að njóta þess að fá mér eina pizzusneið eða svo núna:haha:

kv. Sædís

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 17:34:25 / saedis

Haustið að skella á

þá er sumri tekið að halla og haustið að skella á okkur.  Það er svo sem ágætt þar sem mér hefur alltaf fundist haustið afar skemmtilegur tími, litirnir í haustinu eru virkilega fallegir og svo er haustið alltaf voða rómó tími:haha:
Annars var ég nú að vonast til að væri hægt að klára að mála blessað þakið og öllu sem því fylgir áður en fer að snjóa8|  En það hlýtur nú að hafast:haha:
Það er að vísu eitthvað svo mikið framundan sem er nú bara skemmtilegt, VG flokksráðsfundur, innilota í skólanum, mót í kotinu og kvennaferð:haha:

Krakkarnir byrjarði í skólanum og nú er maður kominn með tvo í unglingadeildinni, 8. og 9. bekk8| omg.... :haha: svo litla skutlan mín komin í Sunnulæk og voða sæl með sig þar.
Ég sjálf að skipta um nám, á svo erfitt með að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór.  Er það ánægð í þessu nýja starfi að ég vil endilega læra eitthvað í tengslum við það og svo fleira:haha:

gott í bili
Guð blessi ykkur
knús Sædís

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 10:58:53 / saedis

Frábær helgi að baki

Vá hvað þetta var mögnuð helgi uppi í koti, Þjóðhátíð hvað..... það falla allar verslunarmannahelgar í skuggann af þessari8)
Andi Guðs var svo sannarlega að störfum þarna í Kotinu. 
Við Gummi skelltum okkur saman á okkar fyrsta kotmót og sjáum við ekki eftir því:)

Það verður sko farið aftur að ári, ekki spurning:d

knús Sædís

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 23:20:39 / saedis

Er ég heppin eða hvað.....

Ja svei mér alla daga, haldið ekki að mín hafi ekki fengið tölvupóst frá "Mr:Wilfrid Laurier þar sem hana "vantar" endilega að fá að leggja nokkra milljarða eða milljónir eða bara ég veit ekki hversu mikið inn á og vill að ég aðstoði hana:haha:  Hér að neðan má sjá bréfið sem ég fékk frá henni

Mr:Wilfrid, and I work in International operation department in a Local Bank here in Switzerland On a routine inspection,I discovered a dormant domiciliary account with a BAL Of US$ 232,000.000.00 If you are interested send me your private Telephone No And Fax number including Account full details.

- Mr:Wilfrid Laurier

er ég heppin eða hvað:haha::haha::haha::haha::haha:
Þannig að næst þegar þið heyrið frá mér verð ég líklega á Bahama.....8|8|8|8|

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 23:06:37 / saedis

On the cover of the magasine.....


Langar bara að benda ykkur á nýjasta tímaritið af Time, þar er ítarlegt viðtal við mig:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 22:49:55 / saedis

Sumar og sól...

Eða þannig, veðrið er ekki beint gæfulegt núna, grámyglulegt og drungi yfir öllu8|  Annars var helgin fín, ég náði með hjálp someone spesial  að mála smávegis ;)og nú er hluti af þakskegginu orðinn loksins grænn, með köngulóar ívafi:haha:  Ég sé fyrir mér svip á fornleifafræðingum eftir 100 ár þegar verður farið að skoða gömul hús á Bakkanum, þá finna þeir uppstoppaðar, fagurgrænar köngulær við gluggana.
Annars er bara einhver pest eins og er í mér, er samt að reyna að borða ís til að ná því úr mér, þoli ekkert sterkara8) Annars er það merkilegt hvað góður ís getur gert:haha: nú þegar eg ég búin að stafla í mig nokkrum skálum (ok litlum já) og mér líður bara mun betur og ætti bara að komast í vinnu á morgun:haha:

Þarf reyndar annars að skella mér í sól bráðum, finn alveg hvernig brunkan rennur af mér með degi hverjum, rándýr brunka sótt alla leið til Tenerife og endist ekki mánuði...:$

knús S

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 11:26:21 / saedis

Helgarfrí

Vá hvað það er gott að eiga helgarfrí, vakna í rólegheitum og þurfa ekki að flýta sér eitt eða neitt8| geta bara vafrað um á naríunum og borðað morgunmat og lesið blogg:haha: svo koma krakkarnir á fætur eitt af öðru og svona kósýheit eru nauðsynleg8)

Annars hefur blessað veðrið sett strik í reikninginn þessa helgina, við ætluðum í bústað en ég fékk að fresta honum sökum veðurs, ekki það að ég hefði ekki komist þetta á mínum lánsfjallajeppa heldur er kannski lítil rómantík í því að vera innilokaður með þrjá krakka/unglinga og enginn kemst neitt, ekki hægt að komast í pottinn nema að eiga á hættu að fjúka úr honum. Þannig að það var ákveðið af okkur hérna að fresta þessu bara og ég sé ekki eftir  því þar sem ég get notað helgina í að taka til hérna heima, þ.e.a.s ef ég kem mér í það:$ 

Jæja best að fara að reyna að byrja á einhverri tiltekt hérna, kannski best að kontróla aðeins kollinn fyrst 8|

Guð blessi ykkur

knús Sædís


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 00:24:24 / saedis

Long time no seeeeee

Jamm það var loks að ég komst inn á mína eigin síðu til að blogga smá8|  Forræðishyggjan í kerfinu er slík að ég kemst aldrei inn sjálf...

En það er nú margt búið að gerast síðan síðast:haha:  En það er það nú alltaf og ég stundum sjálf veit ekki hvað er að gerast eiginlega.  Samt er ég alltaf að finna fleiri og fleiri leiðir til að ná áttum á sjálfri mér8|  Það er stundum svolítið flókið að vera ég.  En ég gerði samt heimikla hreingerningu í mér og hjá mér í kvöld og er stolt af því8) æi hver segir að þetta eigi að vera auðelt, en ef maður setur þetta í hendurnar á Guð og treystir þá gerast hlutirnir:D

Annars var ég í bænum sl. daga og í dag fór ég með frumburðinn í kringluna ásamt Brynhildi og pabba hans að skoða FERMINGARFÖT:haha::haha: Jamm ég er að fara að ferma eða við erum að ara að ferma því það er ekki séns að maður geti staðið í þessu einn8|  Það er ekki bara nóg að segja "já ég vil fermast" heldur þarf að kaupa hitt og þetta og þetta er sko ekki gefins.  Ég á mínum kennaralaunum gæti ekki boðið stráksa mikið af veraldlegu í fermingunni ein og óstudd  og í dag var uniformið keypt og hvað gæinn var flottur:haha: ohh það var svo stolt mamma  og pabbi og stjúpa sem voru að leyfa honum að velja föt (reyndar smá inngrip, en ekki svo mikið:$)  Fórum með hann í 17 þar sem úrvalið er víst mest segja þeir:haha:   Við stóðum þarna 3 og dáðumst að drengnum.   Samt er þetta voða skrýtið því það er svo stutt síðan að ég fermdist sjálf, er einmitt með mín fermingarföt í skápnum mínum, þannig að það er spurning að vera bara í þeim:haha: Hvít pilsdragt, skærgræn skyrta með hjúts axlarpúðum í :haha: kannski smá of litið en hva, það má troða sér:!:  Strákurinn sem var að aðstoða okkur, sjálfur rétt ný fermdur og með buxurnar á hælunum var samt voða næs og almennilegur og snérist í kringum okkur:haha: ohh ekki annað hægt heldur:S

 En Þetta verður bara gaman. ÉG elska að undirbúa veislur eins og sumir vita kannski8)

Ég skellti mér á samkomu hjá samhjálp í kvöld, þeir eru 35 ára í dag, til hamingju með það.  Frábær samkoma:)

Jæja best að fara að sofa þvi á morgun er vinna, matarklúbbur, bootcamp, fimleikar hjá prinsessunni, kynningarfundur á kjarasamningagerð FG, pizzakvöld og kannski fundur.   Góður dagur á morgun í Jesú nafni:)

knús og Guð blessi ykkur

Luv Sædís flækjufótur.......8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 16:40:34 / saedis

Áramót

Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.

 Valdimar Bríem,

Já enn og aftur eru komin áramót,  ég held svei mér að tíminn líði hraðar núna en nokkru sinni fyrr.  Það þýðir að ég eldist hraðar en nokkru sinni fyrr en aukinn aldur þýðir aukinn þroski ekki satt og um áramót tilheyrir það að líta yfir árið og stæra sig af þvi sem vel eg gert, reyna að bæta fyrir það sem fór miður og læra af öllu saman.  Horfa fram á veginn, á ókomið ár með mikla eftirvæntingu í huga.  Horfa björtum augum fram á veginn.  Því lífið hefur upp á svo mikið að bjóða og ef við erum móttækileg þá öðlumst við það sem við þráum.  Guð sér um sína svo sannarlega.

En það er svo stutt síðan að ég var að gera upp árið 2006 og nú er komið að því að gera upp þetta blessaða ár sem nú er að hverfa á braut. 

En það var nú bara ansi margt sem ég baukaði á árinu, ég og mín börn. Við áttum að minnsta kosti gott ár saman.

  • Ég seldi Avensinn í janúar og keypti mér suparo impresu, rosa kúúl pæjubíl sem síðar reyndist aðeins of lítill fyrir mig og minn endalausa farangur þannig að ég seldi hann með vorinu og fékk mér skoda oktavía.
  • Ég náði að mála gluggana að mestu í sumar, þ.e. kláraði það frá sumrinu áður.  Keypti reyndar þakmálningu sem vonandi fer á í sumar bara í staðinn.
  • Djammaði mun minna á þessu ári en því síðasta, aukinn þroski væntanlega...
  • Leitaði að ástinni, fann hana af og til en týndi henni jafnóðum.
  • Ég fór í árlega ferð inn í Þórsmörk á þorra með frábæru fólki og naut þess að vera í náttúruundrunum þar.  ÉG ELSKA að ferðast eins og allir vita
  • Ég ferðaðist því sem aldrei fyrr á árinu, fór með Ingu vinkonu og Guðnýju til kóngsins Köben þar sem við áttum saman fráæbara helgi sem seint gleymist og ég sló svo rækilega í gegn á Samsbar í kareoki.
  • Ég fór nokkru síðar til Belgíu með BES í skólaheimsóknir í Brussel, þetta var frábær ferð og það kom mér á óvart hvað Brussel er falleg borg.
  • í lok sumars fór ég með börnum mínum og 2 systrum  og fjölskyldum þeirra til Portugal í tvær vikur, frábær tími og ég naut þess í botn að vera í sólinni með frábæru fólki.
  • Ég ferðaðist líka mikið innanlands, keypti mér tjaldvagn til að geta ferðast enn meira.  Fór í nokkrar stuttar útilegur og fór síðan í eina reisu um austfirði og að sjálfum Kárahnjúkum með góðum vini mínum.  Ég þarf samt að læra að bakka með vagninn næsta sumar, ekki alltaf hægt að finna nógu breið svæði til að keyra með hann í hring.
  • Ég skipti um vinnustað, þ.e ég tók mér ársleyfi í Sunnulækjarskóla og kom aftur heim í heimahagana og fór að kenna við Barnaskólann.
  • Agnes Halla byrjaði í skóla og er svo dugleg og farin að lesa á fullu, komin með margar fullorðins tennur og er bara svo frábær stelpa.
  • Jóhannes hóf að ganga til prests þar sem á að frema kallinn í vor, flottur strákur sem er búinn að vera að læra á trommur í vetur líka.
  • Hörður ákvað að fara aftur í Sunnulækjarskóla í haust, honum líkar það stórvel.  Hann er alltaf jafn duglegur að læra á píanóið og er bara rosa flottur á því.
  • Krakkarnir mínir eignuðust hálfsystur á árinu.
  • Kosningar voru í vor og eignaðsit VG þinmann hér í suðurkjördæmi, og var kosningabaráttan mjög skemmtileg og gefandi.
  • Ég tók við formennsku i leikskólanefnd í mars þegar urðu breytingar á fólki hjá okkur í VG, einnig varafomaður í ÍTÁ
  • Ég varð 35 ára á árinu, Alla systir varð 40, Hjöddý, Unnar og Steindi urðu 45 ára, mamma varð 65, Bjarki fermdist, Lilja Dögg varð skýrð, Eva Björg varð skýrð þannig að það voru endalaus boð og veislur.
  • Ég náði að bæta á mig slatta af aukakílóum fyrri hluta ársins og um sumarið, en í haust hóf ég átak bæði líkamlega og andlega þar sem ég hef síðan í september náð af mér 14 kílóum. Búin að vera í bootcamp sem er bara frábært.
  • Ég komst í gegnum 12 sporin í al-anon og hef verið nokkuð dugleg í að vinna í þeim málum.
  • Ég eignaðist litla systurdóttir hana Lilju Dögg.
  • Ég fann trúna og frelsaðist og tók skírn á árinu og tel ég það vera mikið gæfuspor fyrir mig og mína.  Fór á frábær mót og Alfanámskeið og margt fleira því tengt.

Þetta er það svona helsta sem ég man í augnablikinu eftir í persónulega lífinu mínu.  í daglega lífinu var heilmikið að gerast og standa þá stjornmálin upp úr.  En ég ætla ekki að fara út í þá sálma núna.

Ég veit að árið 2008 mun vera mjög gæfuríkt, hef miklar væntingar til þess og það er  mjög margt sem ég ætla mér að gera á komandi ári.

Elsku vinir og þið sem eruð lesa þetta blogg mitt.  Megi Guð gefa ykkur gleði- og gæfuríkt ár og færa blessun inn í líf ykkra allra á komandi ári.

Takk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða, fyrir vináttu og hlýhug.

Finnst einstaklega vænt um ykkur

knús  Sædís:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 55141